FORA Connect 21 CGM – fyrstu skrefin
Helstu upplýsingar
Upphitunartími: um 15 mínútur
Mælingar: á 5 mínútna fresti
Stöðugleiki mælinga: stöðugri innan 12–24 klst. frá uppsetningu
Notkunartími: allt að 21 dagur
Staðsetning: aftan á upphandlegg
Hvar á að setja mælinn?
FORA Connect 21 er ætlaður til notkunar aftan á upphandlegg.
Veldu stað þar sem:
húðin er heil, hrein og þurr
ekki eru ör, marblettir, roði eða erting
mælirinn verður ekki fyrir miklu nuddi frá fatnaði, töskuböndum eða íþróttabúnaði
svæðið er ekki beint á bein eða vöðvabrún
nægilegt mjúkt undirhúðarlag er til staðar
Gott ráð: Ekki setja krem eða olíu á svæðið áður en mælirinn er settur á. Hrein og þurr húð hjálpar líminu að festast betur.
Forðastu einnig staði sem þú liggur mikið á, þar sem þrýstingur getur haft áhrif á mælingar og valdið óþægindum.
Fyrsti dagurinn með nýjum sensor
FORA Connect 21 byrjar að sýna mælingar eftir um 15 mínútur, en eins og með aðra CGM-mæla getur sensorinn þurft tíma til að aðlagast líkamanum. Mælingar geta því verið aðeins óstöðugri fyrstu klukkustundirnar og verða oft stöðugri eftir um 12-24 klukkustundir. Þetta gerist vegna þess að sensorinn þarf að jafna sig í vefnum undir húðinni og ná stöðugri snertingu við vefjavökvann.
Ef gildi passar ekki við líðan er ráðlagt að staðfesta með fingurblóðsmælingu.
Nákvæmni og stöðugleiki mælinga
CGM mælir glúkósa í vefjavökva en fingurblóðsmælir mælir glúkósa beint úr blóði. Því geta gildin verið mismunandi, sérstaklega þegar glúkósi er að hækka eða lækka hratt.
CGM-mælingar geta verið um 5–15 mínútum á eftir fingurblóðsmælingu.
FORA Connect 21 er með MARD nákvæmni 8,2%.
Til einföldunar samsvarar 8,2% um það bil:
- 5 mmol/L → um 0,4 mmol/L
- 10 mmol/L → um 0,8 mmol/L
- 15 mmol/L → um 1,2 mmol/L
Tölurnar hér að ofan eru einföld dæmi til skýringar. Einstaka mælingar geta sýnt meira eða minna frávik.