FORA Connect 21 CGM – fyrstu skrefin
Helstu upplýsingar
Aðlögunartími: fyrsta mæling eftir 15 mínútur
Mælingar: á 5 mínútna fresti
Stöðugleiki mælinga: stöðugri eftir 12–24 klst. frá uppsetningu
Notkunartími: allt að 21 dagur
Staðsetning: aftan á upphandlegg
Hvar á að setja mælinn?
FORA Connect 21 er ætlaður til notkunar aftan á upphandlegg.
Veldu stað þar sem:
húðin er heil, hrein og þurr
húðin er ekki með mikinn hárvöxt
ekki eru ör, marblettir, roði eða erting
mælirinn verður ekki fyrir miklu nuddi frá fatnaði, töskuböndum eða íþróttabúnaði
svæðið er ekki beint á bein eða vöðvabrún
nægilegt mjúkt undirhúðarlag er til staðar
Góð ráð fyrir betri festingu
Hrein og þurr húð: Ekki setja krem eða olíu á svæðið fyrir ásetningu.
Fyrstu 24 klst.: Við mælum með að halda svæðinu þurru, forðastu mikla svitamyndun, sturtu og sund.
Settu skynjarann á fyrir svefn: Þá fær límið tíma til að festast yfir nóttina.
Forðastu þrýsting: Veldu stað sem þú liggur ekki beint á. Þrýstingur getur haft áhrif á mælingar og valdið óþægindum.
Mikil æfing eða reglulegt sund: Vatnsheldur festiplástur (overpatch) getur hjálpað líminu að haldast betur.
Fyrsti dagurinn með nýjum sensor
FORA Connect 21 byrjar að sýna mælingar eftir um 15 mínútur, en eins og með aðra CGM-mæla getur mælirinn þurft tíma til að aðlagast líkamanum. Mælingar geta því verið aðeins óstöðugri fyrstu klukkustundirnar og verða oft stöðugri eftir um 12-24 klukkustundir. Þetta gerist vegna þess að mælirinn þarf að jafna sig í vefnum undir húðinni og ná stöðugri snertingu við vefjavökvann.
Ef gildi passar ekki við líðan er ráðlagt að staðfesta með fingurblóðsmælingu.
Nákvæmni mælinga
CGM mælir glúkósa í vefjavökva en fingurblóðsmælir mælir glúkósa beint úr blóði. Því geta gildin verið mismunandi, sérstaklega þegar glúkósi er að hækka eða lækka hratt.
CGM-mælingar geta verið um 5–15 mínútum á eftir fingurblóðsmælingu.
FORA Connect 21 er með MARD nákvæmni 8,2%.
Til einföldunar samsvarar 8,2% um það bil:
- 5 mmol/L → um 0,4 mmol/L
- 10 mmol/L → um 0,8 mmol/L
- 15 mmol/L → um 1,2 mmol/L
Tölurnar hér að ofan eru einföld dæmi til skýringar. Einstaka mælingar geta sýnt meira eða minna frávik.

















